Motivational Monday
- tbjons1
- Jul 13, 2015
- 1 min read

Gleðilegan mánudag!
Ég var að átta mig á því að það styttist rosalega í haustið, 1 árs afmæli Matthildar Rósu svo koma jólin og áramótin! Hvert fór tíminn ?
Ég hrissti þetta af mér og fékk mér morgunverðar þrennuna mína og þá rann það upp fyrir mér hvurslags meiriháttar snilld það
væri að nú væri mánudagur og öll vikan framundan! Í dag er mánudagur og það þýðir FIT CAMP í dag! úti æfing með fullt af fólki, mikið glens og gaman reyndar alveg fullt af svita með því en það er bara geðveikt!
Hóaðu í mig ef þú villt kíkja með mér !
Í dag mun ég standa upp úr sófanum, hisja upp um mig brækurnar, drulla mér út og NJÓTA!
Njóta þess að vera til! Njóta þess að eiga fjölskyldu!
Njóta þess að ÉG strjórna minni eigin hamingju!
Svo í dag! og alla næstu daga ætla ég að stjórna ferðinni og hafa gaman!


Njóttu dagsins kæri vinur
-Þórunn Björk
Comments